Sigur með stuðningi innflytjenda?

Innan við eitt hundrað atkvæði voru milli Össurar Skarphéðinssonar og Sigríðar Ingibjörgu Ingadóttur í baráttunni um fyrsta sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík. Össur er sagður hafa leitað til hópa innflytjenda, fengið þá til að skrá sig til stuðnings Samfylkingunni og merkja við sig í fyrsta sæti á framboðslistanum.

„Á annað hundrað innflytjenda hefur verið skráð á svokallaðan stuðningsmannalista Samfylkingarinnar vegna prófkjara flokksins í Reykjavík. Þar á meðal er fólk sem nýlega hefur fengið hæli hér á landi,“ þetta segir meðal annars í frétt Stundarinnar.

Sé allt þetta rétt er trúlegt að Össur hafi sigrað með stuðningi fólks sem hefur enga stöðu til að kjósa Samfylkinguna í kosningunum í lok næsta mánaðar.