Sigur heiðu bjargar og skúla helga

Heiða Björg Hilmisdóttir og Skúli Helgaason eru sigurvegarar í prófkjöri Samfylkingarinar í Reykjavík, sem fram fór í gær og fyrradag, en þau náðu öðru og þriðja sæti á lista flokksins, en mesta baráttan var um þau sæti. Kristín Soffía Jónsdóttir náði fjórða sæti, een Hjálmar Sveinsson því fimmta.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri bauð sig einn fram í oddvitasæti flokksins í Reykjavík, fékk þar 87% kosningu, en baráttan var þeim mun meiri um að hreppa sætin þar á eftir og voru margir kallaðir en færri útvaldir eins og jafnan á við í prófkjörum af þessu tagi.

Kosning i fyrstu fimm efstu sætin í prófkjörinu eru bindandi, en þau hrepptu eftirfarandi þátttakendur í kjörinu:

1. sæti - Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri með 1610 atkvæði i fyrsta sæti, eða 87%

2. sæti – Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi með 1126 atkvæði í fyrst og annað sæti

3. sæti – Skúli Helgason, borgarfulltrúi með 708 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti

4. sæti - Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi með 732 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti

5. sæti – Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi með 779 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti

Kosningin er nokkuð áfall fyrir Hjálmar Sveinsson sem sóttist eftir öðru sæti og hefur verið einn mest áberandi borgarfulltrúi flokksins á síðasta kjörtímabili.