Sigrún Stefánsdóttir, doktor í fjölmiðlafræði, segist hafa fengið margar áskoranir frá fólki um að hún bjóði sig fram til forseta Íslands.
Þetta kemur fram í Akureyri vikublaði í dag.
Fram kemur að Sigrún sé að íhuga vandlega hvort hún taki slaginn. Hún er að komast á aldur eftir stutta veru sem forseti hug- og félagsvísindasviðs hjá Háskólanum á Akureyri og hefur staða hennar verið auglýst en Sigrún er 69 ára gömul. \"Ég hef bara legið undir feldi og metið stöðuna,\" segir Sigrún í opnuviðtali við Akureyri vikublað sem nú hefur aftur hafið göngu sína eftir hálfs árs hlé á útgáfunni.
Forsetaframbjóðendum fjölgar nú dag frá degi. Í gær upplýsti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í samtali við Fréttatímann að hún væri heit fyrir framboði til Bessastaða.
Heimildir Hringbrautar herma að Össur Skarphéðinsson sé mjög að skoða hvort hann sláist í hóp þeirra sem berjast munu um Bessastaði.