Sigrún sagði gyðu að konan á rauðarárstíg væri dáin: dró úr vernd - „eruð þið að ljúga til um andlát?“

Hatrammar deilur hafa átt sér stað í fjölbýlishúsi á Rauðarstíg vegna vegna óláta og fíkniefnaneyslu leigjanda á vegum félagsbústaða í húsinu. Brugðist var við óskum íbúa með því að fá Securitas til að fylgjast reglulega með. Í húsinu eru sex íbúðir samtals. Í kjallaranum býr maður sem hefur að sögn íbúa haldið þeim nánast í gíslingu, með hávaða, hótunum og skemmdarverkum og þá hefur kærasta hans verið sökuð um að stela ítrekað af íbúum hinum ýmsu munum. Einnig hefði hún gengið berserksgang í ótal skipti og reynt að brjótast inn í íbúð um miðja nótt. Hringbraut hefur undir höndum bréf íbúa til félagsbústaða sem og tölvupóst samskipti á milli íbúa og starfsfólks félagsbústaða.

Gyða Elín Bergs íbúi í húsinu segir félagsbústaði hafa hundsað málið mánuðum saman. Þá hefur lögregla verið kölluð á staðinn og í eitt skipti mættu átta lögregluþjónar og sérsveitarmenn á staðinn. Var ástandið orðið það skelfilegt að ákveðið var að fá vaktmenn á vegum Securitas til að fylgjast reglulega með húsinu til að slá á ótta íbúa. Þá sagði Sigrún Árnadóttir hjá félagsbústöðum að það væri alla jafna ekki gert og segir það sitt um hversu alvarlegt þetta mál er.

Þá hefur Hringbraut tölvupóst undir höndum frá Sigrúnu hjá félagsbústöðum þar sem hún segir íbúum að kærasta mannsins sé látin. Íbúar höfðu skyndilega tekið eftir að í nokkra daga hafði dregið verulega úr því að Securitas væri á svæðinu og hafði Sigrún tekið þá ákvörðun eftir að hafa heyrt að konan sem hafði verið til vandræða í húsinu væri látin. Íbúi í húsinu sendi svohljóðandi tölvupóst til Sigrúnar:

„Sæl Sigrún, eruð þið búin að minnka heimsóknir á Rauðarárstíg?“

Sigrún svaraði:

„Sæl. Vildi upplýsa um að Securitas hættir í dag að fylgjast með húsinu hjá ykkur. Það er dapurlegt frá að segja en vinkona [hans] lést fyrir nokkrum dögum síðan.“

\"\"Í ljós kom að konan var sprelllifandi. Skrifuðu þá furðu lostnir íbúar Sigrúnu bréf. Þar stendur meðal annars:

„Í vikunni fengu nágrannar okkar póst frá þér, Sigrún, þar sem þú sagðir að Securitas myndi hætta með innlitin því kærasta [nafn mannsins tekið út], [nafn konunnar tekið út], væri látin. Við héldum að við værum búnar að upplifa allan skalann í samskiptum við ykkur en nú erum við algjörlega orðlausar. [nafn konunnar tekið út] er ekki dáin. Hún er búin að vera hjá [nafn mannsins tekið út],  í allan dag.

Hverslags vinnubrögð eru þetta eiginlega? Eruð þið að ljúga til um andlát til þess að lækka kostnað hjá ykkur?\"

Hringbraut ræddi við Sigrúnu um þessa ákvörðun og hvernig hún kom til. Félagsbústaðir töldu ástandið það alvarlegt að íbúar þyrftu á gæslu að halda og höfðu dregið úr henni í kjölfar þess að þau höfðu talið að konan væri látin. Sigrún hafði lítinn áhuga á að ræða hvernig þetta hefði átt sér stað og þá hvort hefði ekki átt að sannreyna þennan orðróm um andlát konunnar áður en ákveðið væri að draga úr vernd fyrir aðra íbúa í húsinu. Sigrún sagði:

„Þetta er bara eins og ég var að útskýra fyrir þér, ég fékk rangar upplýsingar. Þú getur bara túlkað þetta eins og þú vilt.“ 

Þá sagði Sigrún að tvær hliðar væru á öllum málum. Íbúar ættu vitandi hvernig ástandið væri í húsinu, að vera ekki að geyma skó frammi á gangi, svo dæmi sé tekið.