Sigrún og ragnheiður tilnefndar til verðlauna norðurlandaráðs

Tvær íslenskar skáldsögur eru tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2019. Þetta eru Silfurlykillinn eftir Sigrúnu Eldjárn og Rotturnar eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur. Alls eru 14 bækur frá Norðurlöndunum tilnefndar og verða verðlaunin veitt í haust.

Alls eiga átta norræn tungumál fulltrúa meðal bókanna 14, þar á meðal grænlenska og samíska. Tilkynnt var um tilnefningarnar á bókamessu í Bologna á Ítalíu í gær.

Silfurlykillinn

Söguþráður Silfurlykilsins er á þessa leið: Þegar „langamman“ deyr verður Karítas að yfirgefa skjólið þar sem hún hefur alist upp og leita sér að annarri fjölskyldu. Eini arfur hennar er gamall silfurlykill og það ráð að treysta engum fyrr en víst sé að það sé góð manneskja.

Silfurlykillinn er framtíðarsaga og Sigrún Eldjárn kastar ungum lesanda út í óskilgreinda tíð eftir hrun siðmenningar þar sem matur og vatn er af skornum skammti og fólk berst miskunnarlaust um allt sem getur hjálpað því til að lifa af. Enn eru til efnislegar en óvirkar leifar gamallar velmegunar og öll tækniþekking er horfin. Börn í þessum harða heimi eru flökkubörn og vör um sig. En Karítas finnur fjölskylduna sem hún þarfnast og saman leggja þau af stað til að finna hina týndu móður og þekkinguna sem lykill Karítasar gengur að.

Rotturnar

Í Rottunum er unglingurinn Hildisif nýflutt aftur til Íslands með fjölskyldu sinni og stendur á tímamótum. Henni er útveguð sumarvinna á hálendinu þar sem hún á að vinna að landvernd með hópi unglinga. Þessum hópi er rænt og hann falinn neðanjarðar í óbyggðunum. Þar fara unglingarnir að veikjast og uppgötva smám saman að hátæknilega byggingin þar sem þeim er haldið föngnum býr yfir andstyggilegu leyndarmáli.

Rotturnar er lýst sem spennandi vísindaskáldsögu þar sem metnaðarfullir vísindamenn á sviði líftækni hafa sagt skilið við alla siðfræði og virðingu fyrir manninum í raun þó þeir segist hafa háleit markmið. Unglingarnir gefast hins vegar ekki upp baráttulaust heldur berjast fyrir lífi sínu og stefna sinni þekkingu á tækni og samfélagsmiðlum gegn þeim fullorðnu.

Um höfundana

Sigrún er myndlistarmaður og einn vinsælasti og þekktasti barnabókahöfundur Íslands. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka fyrir Silfurlykillinn árið 2018.

Ragnheiður Eyjólfsdóttir er arkítekt, menntuð í Danmörku og Þýskalandi. Hún hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir fyrstu bók sína, Arftakinn: Skuggasaga, árið 2015.