Sigrún missti 27 ára gamlan son sinn - „girðið ykkur í brók ráðamenn þessa lands og farið að vinna vinnuna ykkar“

Sigrún Ólöf Sigurðardóttir, sem jarðaði son sinn í síðustu viku, segir að ráðamenn þjóðarinnar verði að vakna og gera eitthvað róttækt í málefnum þeirra, sem eiga við fíkniefnavanda að stríða. Þetta sagði hún í viðtali á Stöð 2 í kvöld. Albert Ísleifsson, 27 ára gamall sonur hennar, leitaði á geðdeild og bað um innlögn en honum var vísað frá og gefinn lyfseðill fyrir pillum sem hann átti að taka vegna veikinda sinna.

„Ráðamenn eru gjörsamlega dofnir, tilfinningalega dofnir, þeim er nákvæmlega sama um almenning og sérstaklega um þá sem minna mega sín, ég get ekki séð annað. Þetta er bara virðingarleysi, þetta er bara ómannúðlegt, ég er marg búin að segja það“.

Albert var jarðaður síðasta föstudag. Að sögn móður hans byrjaði hann ungur að nota fíkniefni og var hann greindur með athyglisbrest og ofvirkni. Albert dó vegna ofneyslu fíkniefna, en rétt áður en hann dó hafði hann farið upp á geðdeild Landsspítalans og beðið um að láta leggja sig inn.

„Honum voru bara boðin einhvern lyf, hann hefði þyrft á innlögn, hann sagði mér alveg að hann væri með sjálfsmorðshugleiðingar og þar fram eftir götunum. Hann hefði þurft að komast í innlögn í einhverjar vikur til að komast yfir pyttinn en það var ekkert gert, hann fékk bara lyfseðil fyrir pillum“, segir Sigrún.

Sigrún segir að ráðamenn þessa lands verði að fara vinna fyrir laununum sínum.

„Það er bara hræðilegt, bara hryllingur, þetta er tilfinning sem ég óska engum að lenda í. Girðið ykkur í brók ráðamenn þessa lands og farið að vinna vinnuna ykkar, vinna fyrir laununum, öll þessi laun sem þið fáið, reynið að vinna fyrir þeim“, segir Sigrún.