"Hún gæti auðveldlega farið mjög langt," voru orð eins samfylkingarmannsins sem hringbraut.is ræddi við í morgun um möguleika Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur í kjöri til formanns flokksins í dag. Landsfundurinn hefst á tólfta tímanum í morgun í Súlnasal Hótels Sögu með setningu, kynningu tillagna og málstofum, en sérstök setningarhátíð hefst svo klukkan 16.30 með setningarræðu Árna Páls Árnasonar, formanns flokksins. Kosning formanns hefst svo klukkan 17.30 í dag og stendur í klukkustund.
Þeir þingmenn og aðrir framámenn í Samfylkingunni sem rætt var við í morgun segja langflestir að framboð Sigríðar Ingibjargar Ingadóttir til formanns í flokknum hafi komið á óvart. Óvanalegt sé að tilkynna framboð með svo stuttum fyrirvara eins og þingkonan gerði í gær, eða tæpum sólarhring fyrir setningu landsfundar. Á máli nokkurra viðmælenda í morgun mátti ráða að Sigríður Ingibjörg væri að reyna að koma Árna Páli í opna skjöldu; með þessu móti ætti hann erfiðara um vik að safna liði, en talið er að um 800 manns verði kosningabærir á landsfundinum í dag, sem er líklega fimmtungi minna en á síðasta landsfundi flokksins. "Það má jafnvel kalla það ósanngjarnt að koma svo seint fram með framboð sitt," sagði einn viðmælenda í morgun.
Sigríður Ingibjörg er vel kynnt í flokksstarfinu og hefur verið á uppleið innan þingflokksins allt frá því hún hlaut svo gott brautargengi í prófkjöri flokksins fyrir alþingiskosningarnar 2009 að eftir var tekið. Hún þykir réttsýn og einlæg í málfutningi, jafnvel tilfinningasöm á stundum. Jöfnuður og jafnrétti eru hennar ær og kýr, svo og félagslegt réttlæti. Hún hefur setið í stjórn þingflokksins, stýrt þingnefndum og sérstökum verkefnum á vegum flokksins og er nú formaður velferðarnefndar Alþingis.
Margir þeirra sem ræddu við hringbraut.is í morgun telja að mjótt geti orðið á mununum í formannskjörinu síðdegis. Árni Páll eigi vísan stuðning meirihluta þingflokksins, en þungt vegi lýðhylli Sigríðar Ingibjargar í fjölmennsta kjördæminu, Reykjavík, þar sem flokkurinn er sterkastur fyrir. En, vel að merkja, eins og einn viðmælendanna orðaði það í morgun: "Innan flokksins eru menn reyndar löngu hættir að vanmeta Árna Pál."