Sigríður segir Þórólf ýkja: „Menn vilja ekki hlusta á mig“

Sigríður Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þegar 90 prósent Íslendinga séu bólusettir þá verði ekki meira gert, það verði að láta allt ganga sinn vanagang og láta af öllum aðgerðum. Sigríður sagði í þættinum Bítið á Bylgjunni að fyrir hluta af þeim peningum sem farið hafi í aðgerðir væri til dæmis hægt að láta konur fá niðurstöður úr leghálsskimunum.

„Menn vilja ekki hlusta á mig, því ég er þingmaður, þá fannst mér gott að sjá Runólf á göngudeildinni á forsíðu Fréttablaðsins benda á þvílíkt ofboðslegt óhagræði það er að greinast falskt jákvætt. Ef menn eru smitaðir en eru einkennalausir í marga mánuði, á þá að láta íslenska ríkisborgara hýrast á hóteli,“ sagði hún.

Sigríður vill leggja af allar sóttvarnaraðgerðir, þá segir hún Þórólf Guðnason sóttvarnarlækni ýkja. „Við þurfum ekki á þessu að halda. Við eigum að hafa spítala sem ræður við þetta. Mér finnst Þórólfur ýkja þegar hann segir að ef 30 þúsund manns muni veikjast þá myndu mörg þúsund manns veikjast. Allir viðkvæmustu hóparnir eru fullbólusettir, það er búið að bólusetja alla nema yngstu kynslóðina sem veikist ekki, það viðurkenna allir. Þetta er orðið ófremdarástand.“