Sigríður Benediktsdóttir flutti 50 þúsund evrur gegnum fjárfestingarleið Seðlabankans til landsins þann 15. febrúar 2012, þegar skipunartími hennar sem framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands var hafinn. Nokkrum dögum fyrr hafði bankinn sett reglur sem bönnuðu tilteknum starfsmönnum bankans að taka þátt í fjárfestingarleiðinni og hafði hafnað nokkrum beiðnum um undanþágur þar að lútandi.
Morgunblaðið skýrir frá því í dag að Sigríður hafi nýtt sér þessa leið þrátt fyrir stöðu sína, en þar segir að hún hafi flutt 15 þúsund evrur til landsins ásamt eiginmanni sínum.
Viljinn sendi Sigríði fyrirspurn í dag, þar sem heimildir hans innan úr Seðlabankanum, hermdu að þessi tala væri ekki rétt.
Hér er hægt að lesa frétt Viljans í heild sinni og sjá bréf sem Már Guðmundsson sendi Sigríði.