Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er andsnúin áformum um samgöngur í Reykjavík sem finna má í fimm ára samgönguáætlun ríkisins sem er til umræðu á þinginu. Sagði hún þar að verið væri að gera gera borgarbúa að „einhvers konar moldvörpum“ vegna áherslna á að leggja götur í stokk.
Sigríður er þá aðallega á móti Borgarlínuinni og áætlunum um almenningssamgöngur í Reykjavík sem er að finna í samgönguáætluninni. „Þegar við erum að tala um að bæta samgöngurnar hérna í Reykjavík þá skiptir svo miklu máli, eða það sem brýnt er, að auka umferðaræðarnar, ekki bara breyta þeim úr vegum fyrir bíla í veg fyrir almenningssamgöngur,“ sagði hún á þingfundi í gær.
„Og ekki eins og höfuðborgarsáttmálinn gerir ráð fyrir, að færa bílana ofan í jarðgöng hérna í Reykjavík og gera alla sem keyra um í bílum mörgum sinnum á dag, kannski Miklubrautina, að einhvers konar moldvörpum, senda þá neðanjarðar til þess að ferðast. Það bætir ekki umferð, eykur ekki greiða umferð um borgina að færa hana til. Það þarf að fjölga æðunum, draga úr álagi á einstökum vegum,“ sagði Sigríður þá.
Hún sagði þá að ófremdarástand ríkti í samgöngumálum í Reykjavík og að það þyrfti að ráðast í vegaframkvæmdir í borginni. Hún vill þannig frekar að þær almenningssamgöngur sem þegar má finna í borginni verði bættar en að eyða svo miklu í Borgarlínuna.