Kennir áfram pólitískri spillingu um niðurstöðuna – segir hana engu máli skipta þrátt fyrir afsögn

Sigríður Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, heldur fram að niðurstaða Mannréttindadómstólsins um að taka fyrir Landsréttarmálið hafi engin áhrif. Hæstiréttur sé eini dómstóllinn sem geti ákvarðað um hvort dómarar séu löglega skipaðir eða ekki. Sigríður Andersen ræddi við RÚV eftir að tilkynnt var að efri deild MDE hefði ákveðið að taka Landsréttarmálið til skoðunar.

Eins og áður hefur komið fram snýst málið um að fjórir dómarar sem Sigríður skipaði við Landsrétt telja að brotið hafi verið gegn 6. Grein mannréttindasáttmálans. Þá þurfti Sigríður að segja af sér sem dómsmálaráðherra. Sigríður hefur sagt niðurstöðuna megi rekja til spillingar, þetta hafi verið pólitískt at hjá pólitískt kjörnum fulltrúum. Sigríður sagði við RÚV:

„Út frá sjónarhóli réttarríkisins hefur þessi niðurstaða engin áhrif. Það hefði ekki skipt máli hvort þeir tækju þetta mál fyrir eða ekki. Hæstiréttur Íslands er eini aðilinn sem getur kveðið á um það hvort dómarar séu löglega skipaðir. Það hefur Hæstiréttur gert með dómi sínum. Það er ekkert sem fær því breytt í í strassborg.

„Það er til marks um ýmislegt að yfirrétturinn ætlar að taka þetta mál fyrir, dóm sem að mínu mati er lögfræðilega rangur og ber þess sterk merki að vera pólitískt at. Þess vegna tel ég jákvætt að dómstóllinn fái tækifæri til að leiðrétta það,“ sagði Sigríður og ítrekaði að það væri engin réttaróvissa og engu máli skipti hver niðurstaðan ytra yrði.