Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í Þjóðbraut í morgun að hún sé óviss um hvort hún gefi kost á sér á ný til Alþingis.
Sigríður Ingbjörg tapaði með einu atkvæði í formannskosningu í Samfylkingunni á síðasta landsfundi.
Hún segir þann ósigur enga ráða um efasemdir hennar um áframhaldandi þingsetu.
Hún hafnar þeirri skoðun Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar, að formannskosningarnar síðast, milli þeirra tveggja, hafi skipt sköpum í falli flokksins í skoðanakönnunum. Hún sagði að fylgi hafi verið farið að lækka nokkru áður en hún skoraði Árna Pál á hólm.