Sigríður Ingibjörg Ingdóttir alþingismaður Samfylkingarinnar tilkynnti í gær, í aðdraganda landsfundar Samfylkingarinnar sem hefst á Hótel Sögu í dag að hún biði sig fram gegn sitjandi formanni flokksins, Árna Páli Árnasyni sem haldið hefur um stjórnartauma flokksins í tvö ár. Sigríður Ingibjörg hefur setið á þingi fyrir Reykvíkinga frá 2009 eftir glæsilega útkomu í prófkjöri flokksins í aðdraganda kosninganna það ár. Hún er nú formaður velferðarnefndar Alþingis.
Sigríður sagði í samtali við RÚV í kvöld að tími breytinga væri nauðsynlegur í Samfylkingunni sem gera þyrfti að nútímalegum flokki sem höfðaði til breiðs hóps landsmanna. Hún telji sig eiga mjög raunhæfa möguleika á sigri í formannskjörinu um helgina.
Árni Páll vann afgerandi sigur í viðureign sinni Guðbjart Hannesson, þáverandi velferðarráðherra í formannskjöri í Samfylkingunni vorið 2009, en hann hefur setið á Alþingi frá 2007.
Landsfundur Samfylkingarinnar hefst sem fyrr segir í dag á Hótel Sögu.