Sigríður Ingibjörg Ingadóttir kveðst ætla áfram þingmennsku fyrir Samfylkinguna eftir landsfund flokksins á Hótel Sögu um helgina, en á tímabili íhugaði hún stöðu sína eftir þá miklu reiðiöldu sem skall á fundinum eftir að formannskjörinu lauk og í ljós kom að sitjandi formaður, Árni Páll Árnason hafði borið sigurorð af Sigríði með aðeins einu atkvæði.
Strax í kjölfar úrslitanna var Sigríður vænd um undirferli; framboð hennar hefði átt sér langan aðdraganda og hún hefði freistað þess með framboði sínu að taka flokkinn yfir, eins og stallsystir hennar Valgerður Bjranadóttir þingkona komst að orði um helgina. Þá lét fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafa það eftir sér að framboð Sigríðar hefði verið misráðið.
Flokkurinn sleikir nú sár sín á mánudegi. Ljóst er að laga þarf lög og reglur flokksins. Um tíma leit út fyrir að flokkurinn væri að klofna að mati stjórnmálaskýrenda á netmiðlum í gærdag. Sigríður telur það ofmat, segir það styrkja flokkinn að undiraldan hafi komist upp á yfirborðið, kveðst sátt við niðurstöðuna og ætli að styðja Árna Pál á formannsstóli eins og hún segir í yfirlýsingu sem hún hefur sent fjölmiðlum, en þar segir: "Sú heift sem birst hefur vegna framboðs míns er í algjörri andstöðu við þann kraft sem kom fram á landsfundi. Ég kýs að túlka það sem svo að ásakanir áhrifafólks í Samfylkingunni vegna lýðræðislegs framboðs míns hafi verið settar fram í hita leiksins."