Árið er 2022 og á lista yfir orðaforða fyrir 2,5 árs gamalt barn er orðið typpi en ekki píka.
Þetta segir Sigríður Elsa á Twitter-reikningi sínum og er að vonum undrandi.
Með færslunni birtir Sigríður Elsa mynd af lista yfir orð sem 2,5 ára börn eiga að þekkja.
Á listanum eru ýmis orð, sem dæmi; andlit, auga, bossi, enni, eyra, fótur, haka, hár, haus, hné, höfuð, hönd, kinn, löpp, magi, meiddi, munnur, nef, nögl, putti, rass, tá, tása, tippi, tunga, tönn, varir og öxl.
Um það bil flest orð sem lýsa ákveðnum líkamshlutum á mannfólki er að finna á listanum. Hins vegar þegar vel er að gáð er hvergi orðið píka að finna á listanum, sem vekur eðlilega upp furðu.
Árið 2022, listi yfir orðaforða 2,5 ára og typpi á lista en ekki píka pic.twitter.com/Bgx9Rzj7sW
— Sigríður Elsa (@SiggaElsa) January 7, 2022