Sigríður Andersen segist ekki búast við því að Mannréttindadómstóll Evrópu muni viðhafa réttláta málsmeðferð í málinu gegn ríkinu.
„Ég hef bent á það að málsmeðferðarreglur dómstólsins vekja ekki trú á því að réttlát málsmeðferð sé höfð uppi. Sami dómari frá Íslandi situr þarna í yfirdeildinni og hefur kannski sinn heiður að verja í þessu máli. Og einnig sami íslenski starfsmaður sem kemur að samningu dómsins,“ sagði Sigríður í samtali við Fréttablaðið.
Sigríður segir jafnframt að dómstóllinn teygi sig sífellt meira inn á svið dómstóla aðildarríkjanna og sé farinn að túlka mannréttindasáttmálann á sífellt nýjan hátt.
„Þeir hafa lagt mikið upp úr því sem þeir kalla skapandi lögskýringar á mannréttindasáttmálanum, sem þýðir að þeir telja að Mannréttindadómstóllinn hafi rétt til þess að túlka mannréttindasáttmálann með nýjum og nýjum hætti.“
Þetta geri dómstóllinn þó að aðildarríkin hafi gagnrýnt það og segir að þetta gangi gegn því sem aðildarríkin hafi samþykkt þegar þau gengust undir mannréttindasáttmálann.
„Þetta er mikið álitaefni í lögfræðinni, hvort að þetta sé heimilt en dómstóllinn sjálfur hefur mjög mikinn áhuga á þessu.“