Sigmundur yfirgaf fundinn samstundis

Sigurður Ingi varð réttkjörinn formaður Framsóknar en stóra verkefnið blasti til þegar úrslitin urðu ljós fyrir tæpum klukkutíma. Stóra verkefnið er að græða sárin á milli ólíkra stuðningsmanna hans og Sigmundar Davíðs. Kosningin var gríðarlega hörð og stóra verkefnið er að sameina fólk á ný, hvernig sem það tekst. Það fer ábyggilega líka eftir viðbrögðum Sigmundar en hann yfirgaf flokksþingið um leið og úrslit lágu fyrir og skv. frétt á mbl.is virðist hann hafa rokið á dyr og verið svekktur. 

Sigurðu Ingi sagði þetta þegar hann sté í pontu sem nýr formaður: “Myndum órjúfanlegu keðjur Framsóknarmanna. Við þurfum að finna góðmennskuna og straumana þrátt fyrir að við tökumst á”, sagði Sigurður Ingi og bað fólk í salnum um að takast í hendur þvert á bekki og ganga sameinuð út úr húsi.

Það sem barst til eyrna Hringbrautar á staðnum áttu sumir nokkuð langt í land með að sætta sig við niðurstöðuna. 

Eygló dró sig í hlé og lýsti yfir stuðningi við Lilju Dögg í varaformannsembættið og tók þannig skref til að sameina fundinn um einn frambjóðanda. Litið er frekar á Lilju sem stuðningsmann Sigmundar og með þessu gerir Eygló sennilega tilraun til að koma jafnvægi á forystuna og fórna sér um leið. Burtséð frá því hvaða möguleika hún hafði haft gegn Lilju en það hefði ekki komið á óvart ef Eygló hefði, sem stuðningsmaður Sigurðar Inga, tapað fyrir utanríkisráðherranum.