Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, sem var viðstaddur undirritun viljayfirlýsingar íslensks fyrirtækis og kínversks málmframleiðanda í gær, telur mikilvægt að orku verði aflað fyrir nýtt kínverskt álver í Húnaþingi.
Það er fyrirtækið Klappir sem hefur annast undirbúning að byggingu álversins sem á að rísa við Hafursstaði í Skagabyggð, en það er sagt munu útvega 230 manns störf á svæði sem hefur átt mjög undir högg að sækja í íbúaþróun um margra ára skeið.
Ekki hefur verið útveguð orka fyrir fyrirhugað álver, en aðstandendur álversins hafa viljað fá orku úr Blönduvirkjun, en hún er nú þegar full nýtt, einkum fyrir orkukaupendur utan Húnvatnssýslna. Þörf er því á stóraukinni orkuframleiðslu til að sinna fyrirliggjandi verksmiðjuhugmyndum.
Sigmundur Davíð mun hafa sagt við undirritun samningsins milli kínverska stórfyrirtækisins og Klappa að hann væri stuðningsmaður verkefnisins og teldi mikilvægt að koma því heilu í höfn.