\"Það er fyrir löngu orðið vandræðalegt hvað forsætisráðherra er mikið í mun að slæma hendi til borgaryfirvalda þegar uppbygging í miðborginni er annars vegar.\"
Þetta skrifar Dagur B. Eggertsson á fésbók sína undir lok vikunnar og undrast enn og aftur hvað Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni er áfram um að skipuleggja borgina, burtséð frá valsviði hans: \"Sjaldan hefur honum þó tekist jafn illa upp og í þessu máli,\" skrifar Dagur og minnir á áhuga ráðherrans á að friða húsið Casa Christi á lóð Menntaskóla Reykjavíkur.
\"Nú gerir hann athugasemdir við að borgin hafi leyft ríkinu (honum sjálfum) að gamalt hús víki á reit Menntaskólans í Reykjavík fyrir mikilvægri uppbyggingu í þágu skólans. Þarna hefði verið skynsamlegt fyrir ráðherra að kanna málið áður en hann settist við tölvuna eða hljóp í blöðin,\" skrifar Dagur og minnir á að ríkið sé í þessu tilviki framkvæmdaaðilinn og hafi lagt ríka áherslu á að húsið viki.
Staðreyndin sé sú að umhverfis- og skipulagsráð borgarinnar hafi beint því til ríkisins með sérstakri bókun 11. nóvember sl. að húsið yrði gert upp í upprunalegri mynd, en honum vitandi, skrifar Dagur, hafi ríkið ekki fallist á það, heldur viljað halda sínu striki: \"Og hver ætli sé nú hinn lögformlegi umsagnaraðili sem blessaði gjörninginn og lagði til að húsið yrði fært annað. Það er Minjastofnun, undirstofnun forsætisráðherra sjálfs, í umsögn sinni 8. október sl. Minjastofnun vísar til þess að hún sé bundin af eldri úrskurðum húsafriðunarnefndar ríkisins, sem er rétt,\" skrifar Dagur, eiginlega hissa.
\"En þó blasir við,\" botnar hann skrifin sín \"að forsætisráðherra hefur það algerlega í hendi sér að endurgera friðaða húsið og láta það standa, í takt við tilmæli borgarinnar, enda bæði framkvæmdaaðili og umsagnaraðili í málinu. Hann þarf miklu frekar að reka deilur sínar við sjálfan sig eða önnur ráðuneyti, frekar en borgina í þessu máli.\"