Sigmundur: söluvaran ykkar er ótti!

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fráfarandi forsætisráðherra vegna spillingarmáls, fór hörðum orðum um minnihlutann á Alþingi í dag en sýndi ekki snefil af auðmýkt í ræðu sinni.

Hann sagði að hans eigin ríkisstjórn hefði verið farsæl. Árangur á þremur árum væri slíkur að enginn sem tefldi fram rökum gæti annað sagt en að hér hafi orðið framúrskarandi árangur. Einstakar aðgerðir hans sjálfs og félaga hafi skapað þessa gæfu.

Sigmundur sagði að hann hefði þó ekki tíma í stuttri ræðu til að útlista \"hinn mikla árangur\" heldur réðist hann á stjórnarandstöðuna í umræðu um vantrauststillöguna og sagði að sölurvörur stjórnarandstöðunnar væru reiði, gremja, tortryggni, heift, vonleysi og ótti.

\"Ótta þekkja þau vel sjálf. Enda réði ótti stjórn landsins 2009-2013, ótti við að bekenna andann í þjóðinni,\" sagði Sigmundur Davíð.

Vald fyrri ríkisstjórnar hefði byggst á reiði, tortryggni og gremju. Efnahagshrunið hefði verið pólitískt tækifæri fyrir reitt og hrætt fólk, hina svokölluðu Vinstri stjórn.