Sigmundur er óvinsælasti pólitíkusinn

Birgitta Jónsdóttir er sá stjórnmálamaður þjóðarinnar sem helst fer með himinskautum í vinsældum íslenskra pólíkusa ef marka má nýja könnun MMR á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum. Hún er er eini stjórnmálaleiðtoginn sem nýtur meira trausts nú en í júní 2013.


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er óvinsælasti stjórnmálamaður þjóðarinnar um þessar mundir og sá foringja stjórnarandstöðunnar sem skorar lægst í vetrarlok er Árni Páll Árnason. Katrín Jakobsdóttir er hins vegar enn sem fyrr sá formaður stjórnmálaflokkanna á Alþingi sem nýtur mests trausts.


Þá vekur það sérstaka athygli að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands nýtur enn mikils trausts hjá þjóðinni, en hann er hafður með í könnun þessari um viðhorf fólks til forystufólks í stjórnmálum.


Ef stjórnarherrar landsins eru skoðaðir sérstaklega kemur í ljós að 22,8% bera traust til Bjarna Benediktssonar og 17,5% bera traust til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.