\"Þingmaðurinn hefur enga fjárhagslega hagsmuni sem reglurnar taka til.\"
Svo segir á heimasíðu Alþingis undir liðnum hagsmunaskráning. Þar er átt við þingmanninn Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra þjóðarinnar.
Í gær upplýsti eiginkona hans á facebook-síðu sinni að erlent félag héldi utan um eignir hennar sem tengjast arfi. Í yfirlýsingu eiginkonu ráðherra segir m.a. eftirfarandi:
\"Félagið var stofnað til að halda utan um afrakstur sölu á hlut mínum í fjölskyldufyrirtækinu og bankinn sem ég leitaði til taldi einfaldast að stofna erlent félag um eignirnar svo þær væru vistaðar í alþjóðlegu umhverfi og að auðvelt yrði að nálgast þær hvar svo sem búseta okkar yrði. Ég lét bankanum eftir framkvæmdina en gerði það að skilyrði að allir skattar væru greiddir strax á Íslandi. Það var því strax gerð grein fyrir öllum tekjum af sölunni og félagið hefur því frá upphafi verið skráð 100% í eigu minni á Íslandi, verið talið fram á skattframtölunum okkar Sigmundar hér heima og allir skattar verið greiddir samkvæmt því. Tilvist félagsins hefur því aldrei verið leynt. Auk þess hafa skattgreiðslurnar komið fram reglulega í blöðunum þegar álagningarskrárnar eru birtar. En þó við séum samsköttuð eru eignirnar samt sem áður mínar og eru skráðar í samræmi við það.
KPMG hefur haldið utan um skattamálin fyrir mig og mér hefur frá upphafi verið mjög mikilvægt að þau séu í fullkomnu lagi. Það var því aldrei frestað neinum skattgreiðslum eða neitt þess háttar þó að möguleikar væru til þess samkvæmt lögum.
Þegar við Sigmundur ákváðum að gifta okkur fygldi því að fara yfir ýmis mál, þar á meðal fjárhagsleg. Bankinn minn úti hafði gengið út frá því að við værum hjón og ættum félagið til helminga. Það leiðréttum við á einfaldan hátt árið 2009 um leið og við gengum frá því að allt væri í lagi varðandi skiptingu fjármála okkar fyrir brúðkaupið. Félagið var því frá upphafi rétt skráð á Íslandi og hélt utan um séreign mína. Skráningin úti og leiðrétting hennar hafði því engin eiginleg áhrif.\"
Yfirlýsingin vekur spurningar um lausnir við gjaldeyrishöft, viðskipti, bankamál og ýmsa stjórnsýslu sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefir komið að undanfarið.
Þá hefur verið spurt hvort viðbragð eiginkonu fosrsætisráðherra sem sá ástæðu til að gefa þessa yfirlýsingu \"sennilega ekki upp úr engu\" eins og einn almannatengill orðaði það í samtali við Hringbraut\" er forvirk aðgerð þar sem von sé á uppljóstrun hjá innlendum eða erlendum fjölmiðli.
Mikil umræða er nú um málið þegar meðal þingmanna en þeir sem Hringbraut hefur rætt við neita opinberlega að tjá sig um málið að sinni.