Valgerður Bjarnadóttir þingmaður Samfylkingarinnar skilur ekki forgangsröðun ríkisstjórnarflokkanna sem geti ekki komið sér saman um nauðsynlegar úrbætur fyrir leigjendur og boði sumarþing til að leysa þann vanda. Hún botnar ekkert í því um hvað ríkisstjórnarfundirnir fjalli um: "Hinir löngu fundir ríkisstjórnarinnar hafa líklegast mest fjallað um fráleita tillögu og draumsýn forsætisráðherrans um að byggja hús niðri í bæ. Hús sem er hundrað árum á eftir tímanum og auk þess einhvern óskilgreindan óþarfa í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Í tilefni af afmæli fullveldisins á forsætisráðherrann auðvitað að skila okkur, þjóðinni, Þingvallabænum. Þá geta allir, háir sem lágir, fengið kaffi og húsaskjól í þjóðgarðinum," skrifar Valgerður í nýjum pistli sínum á hringbraut.is.
Og bætir svo við: "Í anda helmingaskiptanna hefur Illugi svo fengið að boða að lokið yrði við byggingu Árnastofnunar. Ekki veitir honum af að tengja nafn sitt einhverju sem byggir upp en rífur ekki niður. Mikið hefði nú verið ánægjulegt og flott ef ríkisstjórnin hefði látið stórmennskufirrurnar eiga sig og lofað að ljúka byggingu Árnastofnunar eigi síðar en á afmælisárinu."