Sigmundur segir ekki fyrir verkum

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata segja á Hringbraut í kvöld að erfitt sé að átta sig á því hvert Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sé að fara með bréfi sínum til flokksmanna þar sem hann telur upp öll þau verk sem ríkisstjórnin ætli að ráðast í og að ekki verði kosið í haust.

Ragnheiður segir að málið sé prófsteinn á forsætisráðherra en málið sé aðallega það að Framsóknarflokkurinn segir ekki Sjálfstæðisflokknum fyrir verkum. „Þetta er samstarf og það er ekki hægt að krefjast þess eins og Sigmundur gerir að Sjálfstæðismenn geri eins og hann vill. Þetta virkar ekki þannig“.

Sigmundur segir Sjálfstæðisflokkinn áhugasaman um þingkosningar í haust „einhverra hluta vegna“

Ásta Guðrún vonar að ekki komi til þess að flokkur hennar, Píratar gangi í að stöðva öll mál á þingi, komi ekki skýr dagsetning fyrir kjördag þegar þingið kemur saman í ágúst. Hún segist ekki sjá að það sé heldur hægt að snúa af þeirri braut til haaustkosninga sem allir eru komnir á.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra segist ætla taka fullan þátt í stjórnmálum á nýjan leik eftir að hafa dregið sig í hlé eftir Wintris málið. Í bréfi sínu til flokksmanna fyrr í vikunni segir hann að alþingiskosningum verði ekki flýtt og þær haldnar í haust nema að verkefni ríkisstjórnarinnar verði kláruð fyrir þann tíma. Orðrétt segir hann: „Það verður að vera alveg ljóst að við gerum þá kröfu til samstarfsflokksins að við ætlumst til að ríkisstjórnin klári þau verkefni sem hún lofaði á kjörtímabilinu.“

Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformaður Framsóknar og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra hafa báðir sagt skýrt að kostið verði í haust.

 

Undirbúningur að prófkjörum er farinn af stað og forseti Alþingis farinn að haga dagskrá  þingsins miðað við að kosið verði í haust. Verkefnin sem eftir eru á málalista ríkisstjórnarinna munu ekki klárast fyrir haustið enda mörg stór og erfið.