Sigmundur segir efnahagslegar sveiflur af völdum galins gjaldmiðils leika ákveðna hópa hart

Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Fréttablaðsins, fjallar um grafalvarlegt ástand efnahagslífsins hér á landi í leiðara í Fréttablaði dagsins.

Pistillinn hefst á áminningarorðum um að uppskriftin sé ekki flókin, jöfnuður sé affarasælastur á öllum sviðum samfélagsins.

Ójöfnuður leiði til annarrar niðurstöðu, siðrofs sem á endanum kljúfi samfélagið.

Íslensk stjórnvöld þurfi að grípa í taumana og aðstoða þá hópa sem eru verst útsettir.

„Eitt meginverkefni íslenskra stjórnmála á ávallt að vera það að hlúa að jöfnuði á öllum sviðum samfélagsins. Og enda þótt því hafi farnast betur á því sviði en mörgum öðrum aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, eru blikur á lofti, einkum hvað varðar ungt fólk, innflytjendur, öryrkja og langveika landsmenn, en efnahagslegar sveiflur af völdum galins gjaldmiðils leika þessa hópa hart.“

Þá vekur Sigmundur athygli á því að það virðist sem svo að auðvelt sé að glopra niður gæfulegu samfélagi og að efnahagsstjórn landsmanna virðist miðast af því að færa peninga frá þeim sem þurfa þá til þeirra sem eiga þá fyrir.