\"Það sem topparar þrá umfram allt annað er athygli og því er ég eflaust að veita jákvæða styrkingu með því að svara slíkum manni. Hann mun sjálfsagt líta á það sem tækifæri til að útskýra að nú hafi sannast enn betur en áður hversu illa gefnir og illviljaðir stjórnmálamenn séu,“ segir Sigmundur í grein sinni. “Það er samt ekki hægt að láta það óátalið þegar maður sem talinn er gáfaður á sumum sviðum heldur fram hreinum ósannindum og nýtir um leið veikindi fólks til sjálfsupphafningar.“
Sigmundur Davíð segir framgöngu Kára ekki aðeins vera ranga og óheiðarlega heldur sé hún líka skaðleg. Það sé vegna þess að enn betri árangur þurfi að nást í heilbrigðismálum og til þess verði stjórnvöld að geta reitt sig á ráðgjöf þeirra sem best þekkja til: \"Galgopaháttur í bland við rangfærslur hjálpar ekki til við það og enn síður lausnir byggðar á ósannindum,“ skrifar Sigmundur Davíð næsta reiður í Fréttablaðið í dag.