Sigmundur ósáttur: „hræðilegt hvernig farið er með gamla miðbæinn“ - kasta á glæ einstöku tækifæri

Hræðilegt er að horfa upp á hvernig farið hefur verið með gamla miðbæinn í Reykjavík á undanförnum árum.

Þannig hefst pistill eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins. Hann bætir við að hvergi virðist mega vera heildstæð þyrping húsa í sígildum stíl, hvort sem það sé steinsteypuklassík, timburhús eða blanda þessara sögulegu íslensku húsagerða. Sigmundur Davíð gagnrýnir einnig framkvæmdir á Hafnartorgi og fyrirhugað hótel sem nú er að rísa á svæðinu. Tilefni skrifanna er að í dag var fyrsta skóflustunga tekin að nýju skrifstofuhúsnæði Alþingis á lóð þar sem áður stóð fjölbreytileg þyrping gamalla timburhúsa. Hann segir:

„Á lóðinni fundust minjar frá einni elstu byggð á Íslandi en þær verða nú fjarlægðar til að rýma fyrir bílastæðakjallara. Minjarnar hefði hugsanlega mátt varðveita í nýju húsi. Aðalatriðið var þó að nýbyggingin væri til þess fallið að styrkja heildarmynd byggðarinnar í miðju hins agnarsmáa gamla miðbæjar höfuðborgar Íslands.“

Þá bætir Sigmundur Davíð við:

„Á sínum tíma samþykkti ríkisstjórnin tillögu um að óbyggt hús sem Guðjón Samúelsson teiknaði fyrir þennan stað yrði reist fyrir Alþingi. En svo tók kerfið völdin og nú ætlar vinnustaðurinn minn, Alþingi Íslendinga, að taka þátt í steinsteypukassavæðingu miðborgarinnar.“

\"\"

Teikning Guðjóns Samúlessonar sem til stóð að nýta

Húsið er unnið af færum arkitektum en formaður Miðflokksins telur að það hús sem á að rísa á Alþingisreitnum ætti betur heima í Borgartúni en í miðpunkti gamla bæjarins í Reykjavík.

\"\"

Svona lítur hið núja hús út

Sigmundur birtir myndir af húsinu og segir:

„Að innan virðist hrá steinsteypan umlykja allt. Hið gráa og kalda umhverfi er ólíkt hlýjum og notalegum innviðum gamla þinghússins. Þrátt fyrir að Alþingishúsið hafi verið miðpunktur deilna um allt mögulegt í um 140 ár ber flestum saman um að andinn í húsinu sé góður. Það helgast ekki hvað síst hinni hlýlegu hönnun þess. Þannig eiga þinghús að vera, til þess fallin að lyfta andanum og auka vellíðan og bjartsýni.“

Segir Sigmundur að með framkvæmdinni sé Alþingi að kasta á glæ einstöku tækifæri til að auka við það sem gerir gamla bæinn í höfuðborg Íslands sérstakan. Hann segir að lokum:

„Alþingi leggur nú sitt af mörkum við að tískuborgarvæða gamla miðbæinn og tekur þátt í þeirri eyðileggingu sem einkennt hefur skipulagsstefnu undanfarinna ára.“