Sigmundur davíð hlýðir forsetanum

„Jæja, þá vitum við hvern Forseti Lýðveldisins var að tala í ræðunni sinni við þingsetningu og ljóst að Sigmundur hlýðir.“

Þannig hljómar stutt en snörp stöðufærsla þingmannsins Birgittu Jónsdóttur á facebook og endar með fýlukarli, eða andstæðu broskarls.

Birgitta, einn þriggja þingmanna Pírata, tengir í færslu sinni við frétt á Eyjunni þar sem fram kom hjá forsætisráðherra í samnefndum sjónvarpsþætti sem Björn Ingi Hrafnsson stýrir, að ekki sé hægt að setja stjórnarskrármálið í þjóðaratkvæðisgreiðslu næsta ár ef málið teljist umdeilt.