„Ég vildi alltaf vera samkvæmur sjálfum mér sem blaðamaður, láta ekki stjórnast að utanaðkomandi mönnum eða hópum.“
Þetta segir Sigmundur Ó. Steinarsson fyrrverandi fréttastjóri á Morgunblaðinu. Fréttablaðið greindi frá því að fimmtán manns hefði verið sagt upp á Morgunblaðinu á fimmtudaginn. Uppsagnirnar dreifast á alla miðla útgáfunnar. Í þeim hópi voru íþróttafréttamenn með áratuga reynslu að baki en þeir sem fengu að taka pokann sinn voru þeir Guðmundur Hilmarsson, Ívar Benediktsson og Sindri Sverrisson.
Sigmundur sem lengi var fréttastjóri íþrótta á Morgunblaðinu er afar ósáttur við ákvörðun stjórnenda að reka reynsluboltana. Hann tjáir sig í löngu máli á samskiptamiðlum og greinir frá því að hann hafi verið spurður um hvað hann myndi gera hefði hann gegnt sömu stöðu og þegar uppsagnirnar áttu sér stað í Hádegismóum.
„Ég þurfti ekki að hugsa lengi; svaraði: „Ég hefði sagt við ritstjórana: „Sjáið þið um þetta, strákar!“ Ég er einnig farinn - tekið poka minn og gengið á brott með mínum mönnum.“
Sigmundur segir ótrúlegt að verða vitni að því að deildinni hafi verið slátrað upp úr þurru nánast. Hann hrósar síðan þremenningunum fyrir mikla fagmennsku í starfi en hann réð bæði Sindra og Víði.
Þá segir Sigmundur að fyrrverandi eigandi Morgunblaðsins, Björgólfur Guðmundsson, sem á þeim tíma átti knattspyrnufélagið West ham hafi óskað eftir að það yrði sérstakt West Ham horn daglega í blaðinu.
„ ... sagði ég að það væri erfitt. West Ham væri ekki eitt af stóru liðunum á Englandi og daglegar fréttir frá Upton Park gengi ekki upp. Það væri kannski hægt að vera með vikulega frétt. Þessi viðbrögð mín vöktu ekki hrifningu hjá nokkrum,“ segir Sigmundur og bætir við:
„Ég kippti mig ekki upp við það; Ég vildi alltaf vera samkvæmur sjálfum mér sem blaðamaður, láta ekki stjórnast að utanaðkomandi mönnum eða hópum.“ Þá segir Sigmundur í lok pistilsins:
„Mér var sagt upp stuttu síðar!“