Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, stendur ekki einn á þeim pólitíska berangri sem hann er kominn á og nú hefur hann fengið eindregna stuðningsyfirlýsingu frá detox-frömuðinum Jónínu Benediktsdóttur.
Jónína lofar Sigmund Davið og eiginkonu hans, Önnu Sigurlaugu, á Facebook-vegg sínum og birtir af hjónunum fallega mynd með. Hún leggur til að Sigmundur Davíð bjóði sig fram til forseta og skýtur í leiðinni fast á Ólaf Ragnar Grímsson, Dorrit, eiginkonu hans og nokkra fjölmiðlamenn.
„Ég tók þessa fallegu mynd eftir að SDG var kjörinn formaður Framsóknarflokksins. Ég tel mig mikinn mannþekkjara og strax sá ég að þarna fór fólk sem var sannarlega ástfangið og til í þá erfiðu tíma sem við blöstu í endurreisn Íslands. Villimennska blaðanjósna eru einhliða og einkennast af hatri og illkvittni. Þau stóðust ekki það próf og gerðu mistök,“ skrifar Jónína og spyr síðan í framhaldinu hvort ekki sé lag að „Sigmundur Davíð bjóði sig fram til forseta því eins og við vitum finnst þjóðinni bara flott að forsetafrúin sé milljarðamæringur sem greiðir skatta í Englandi,“ segir Jónína og bendir þarna á að Dorrit greiði sína skatta í Bretlandi. Fyrir þetta kvittar Jónína með broskalli.
„Mér þykir mikið til þeirra beggja komið og hef fyrirgefið þeim að hafa látið bankadrengina villa um fyrir sér. SDG hefur náð eyrum erlendra stjórnmálamanna líkt og Ólafur hefur gert! Hefði hann geymt peninga sína í Sjóði 9 hefði okkur þá liðið betur? “ Spyr Jónína.
Sigmundur Davíð hefur vitaskuld gert enn betur og ekki aðeins náð eyrum erlendra stjórnmálamanna heldur heimsbyggðarinnar og ekki á mjög jákvæðum forsendum eins og nýleg dæmi sanna.
Í athugasemdum við myndbirtinguna dregur Jónína hvergi af sér og þar fá nokkrir á baukinn: „Hvað heldur þetta fólk að það sé, svo gerir það ekkert nema að græða sjálft á stolnum gögnum sem eru skrumskæld og tekin úr samhengi.
Egill Helga skrifar fyrir Björn Inga og þiggur laun, Jóhannes Kr þiggur yfir milljón hjá Rúv, Björn Ingi Hrafnsson er fenginn til þess að reka hvern fjölmiðilinn á fætur öðrum með tapi, Mogginn er undir álögum kvótaeigenda. Krakkar ætlið þið enn eina ferðina að láta fjölmiðla stjórna áliti ykkar á stjórnmálamönnum? Það er bilun að trúa þessu öllu.“