Barátta Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fyrir eigin pólitískri framtíð virðist töpuð. Svo segir þingmaður úr hans eigin flokki í samtali við Hringbraut en kýs nafnleynd. Með viðtali sem Hringbraut birti í morgun við einn helsta trúnaðarmann Framsóknarflokksins lá fyrir að formaðurinn nyti ekki stuðnings eigin manna. Nú á þingflokksfundi framsóknarmanna síðdegis lá fyrir að þorri þingmanna styddi ekki lengur foringjann skv. heimildum Hringbrautar. Hann hrökklaðist frá völdum sem forsætisráðherra vegna spillingarmáls í síðustu viku og að loknum þingflokksfundi síðdegis liggur fyrir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur tekið sér ótímabundið leyfi frá þingstörfum.
Uppfært kl. 19.03: Skiptar skoðanir eru meðal framsóknarmanna hvort Sigmundur Davíð eigi endurkomu í stjórnmál. Sigurður Ingi, varaformaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, segir hann ekki hættan heldur muni flokkurinn nú gefa honum og fjölskyldu hans \"svigrúm\" eftir því sem fram kom hjá Rúv.
Í bréfi Sigmundar til flokksfélaga er ekki að heyra að hann sé hættur í pólitík en kosið verður um nýjan formann á flokksþingi sem að líkindum verður flýtt.