Sigmundur er að sjálfsögðu laskaður

Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra sækist eins og kunnugt er eftir fyrsta sæti Framsóknarflokksins í Reykjavíkur kjördæmi suður. Hún segir í viðtali á Hringbraut í kvöld fullviss um að flokkurinn fari aftur í ríkisstjórn, samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn hafi verið gott, að minnsta kosti sé það sín reynsla. Mörg stór mál hafi gengið eftir eins og skuldaleiðréttingin og losun gjaldeyrishafta.

Þessi verk munu tala fyrir næstu kosningar, sagði Lilja og hafnaði því að flokkurinn með Sigmund Davíð í forsystu myndi tapa atkvæðum vegna formannsins. „Auðvitað er stjórnmálamaður sem segir af sér laskaður“, segir Lilja en hann hafi axlað sína ábyrgð og sagt af sér embætti.

Lilja tók við í byrjun apríl sem utanríkisráðherra eftir afsögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Lilja kom óvænt inn á sjónarsviðið en hafði um hríð unnið sem ráðgjafi Sigmundar Davíðs í stjórnarráðinu og þar áður í Seðlabanka Íslands. Enn fyrr var hún sérfræðingur við Alþjóðabankann í Washington.  Hún segist ekki hafa tekið neina ákvörðun um hvort hún bjóði sig fram í stjórn flokksins, til dæmis sem varaformaður. „Ég vil að sjálfsögðu vera í forystu flokksins“, segir Lilja en ótímabært sé að segja nokkuð um hvort hún bjóði sig fram í embætti innan flokksins.

Enn hefur ekki verið ákveðið hvort flokksþing verður haldið og forystan endurnýjun þar. Miðstjórn kemur fljótlega saman og segir Lilja hafa miklar væntingar til þess að eftir það verði staða hvers og eins skýr.