Á sama tíma og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem e.t.v. er sá forsætisráðherra heimsins sem stendur höllustum fæti nú um stundir, neitar að svara spurningum fjölmiðlamanna og lætur ekki ná í sig, segir gestur á bar á Akureyri um helgina að þar hafi forsætisráðherrann djammað með eiginkonu sinni og aðstoðarmanni sínum Jóhannesi Þór, sem stundum er kallaður af gárungum Jóhannes útskýrari.
Bargesturinn sem hafði samband við Hringbraut sagði að Sigmundur Davíð hafi fengið ágætt næði af hálfu gesta á barnum, það er Götubarnum á Akureyri. Nokkur brögð hafi þó verið að því að gestir hafi viljað taka \"selfie\" eða sjálfu með símum af sér og ráðherra. Sigmundur hafi tekið slíkum beiðnum fagnandi.
Akureyri er eitt helsta vígi Sigmundar Davíðs sem fyrsta þingmanns kjördæmisins. Hann flutti lögheimili sitt á eyðibýli í kjördæminu og vann mikinn kosningasigur árið 2013 og býr enn að.