Sigmundur davíð vill hert eftirlit

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráðherra seg­ir að breytt og eflt landa­mæra­eft­ir­lit hér á landi sé í skoðun hjá þar til bær­um yf­ir­völd­um, en hann telur sjálfur nauðsynlegt að herða landamæravörslu.

Þewtta kemur fram í samtali við forsætisráðherra í Morgunblaðinu í dag, en þar metur hann það svo að ytri landa­mæri, sem séu for­senda Schengen-sam­starfs­ins, séu hætt að virka í sum­um lönd­um Evr­ópu, inn­an Schengen-svæðis­ins.

For­sæt­is­ráðherra seg­ir í sam­tali við ­blaðið í dag, spurður hvort efla beri landa­mæra­eft­ir­lit hér á landi vegna þess ástands sem skap­ast hafi í Evr­ópu í kjöl­far hryðju­verka­árás­anna í Par­ís, að þar til bær yf­ir­völd séu að skoða þann mögu­leika. Það segi sig í raun­inni sjálft að þegar ytri landa­mæri þessa svæðis, sem átti að heita að vera opið inn­byrðis, virka ekki breyti það for­send­um um opin innri landa­mæri.