\"Þetta virðist vera orðið að máli fyrir geðsvið Landsspítalans að vinna með fremur en forseta og Alþingi,\" segir fyrrum formaður Geðhjálpar og fréttamaður, Sigursteinn Másson og tengir á facebook við frétt Rúv þar sem segir að Sigmundur Davíð sé í raun ekki hættur.
Kjarninn sagði fyrst þá í gærkvöld sem hefur rætt mikilli furðu bæði innanlands og utan að í tilkynningu til erlendra fjölmiðla frá Stjórnarráðinu kemur fram að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hafi falið varaformanni flokksins að taka við forsætisráðuneytinu í ótilgreindan tíma. Hann hafi ekki sagt af sér og muni áfram vera formaður Framsóknarflokksins. Þessar upplýsingar þykja í litlu samræmi við veruleikann í gær.
Sigurður Már Jónsson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, telur upplýsingarnar ekki villandi en vísar að öðru leyti á Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmann fráfarandi forsætisráðherra eins og segir í frét Rúv um málið. Í bréfinu sem upplýsingafulltrúinn ritar undir er farið mjög lofsamlegum orðum um verk Sigmundar Davíðs og látið sem hann sé í tímabundnu leyfi.
\"Mögulega þarf að svipta fráfarandi forsætisráðherra sjálfræði tímabundið á meðan honum er komið undir læknishendur og best ef að viðkomandi sveitarfélag, þar sem hann á lögheimili, taki það að sér samkvæmt lögum fremur en að sú þrautarganga sé lögð á hans nánustu aðstandendur,\" segir Sigursteinn Másson.
Einn þingmanna meirihlutans sem Hringbraut ræddi við vegna málsins kallar málið mannlegan harmleik.