Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hlýddi á ræðu Volodímírs Selenskíjs Úkraínuforseta sem hann hélt fyrir Alþingi í dag. Sigmundur var einkar ánægður með Selenskíj sem byrjaði á því að bjóða þingheimi góðan daginn á íslensku, svo ánægður að hann þýddi nafn forsetans yfir á íslensku.
„Það var ánægjulegt að sjá Valdimar Alexandersson Selenskíj Úkraínuforseta ávarpa þingið á íslensku og nefna Kænugarð og samskipti þjóðanna í meira en þúsund ár. Sagan skiptir máli og sjálfstæði og lýðræði eru ekki sjálfgefnir hlutir eins og hann lýsti vel,“ skrifar Sigmundur á Facebook.
Úkraínuforsetinn undirstrikaði einnig tengsl Úkraínu og Íslands sem hann sagði vera mjög náin.
„Úkraína og Ísland eru svo sannarlega nátengd, við höfum tengst menningarlegum böndum í yfir þúsund ár,“ sagði Selenskíj.
Sigmundur Davíð segir það vera fulla ástæðu til að hrósa Birgi Ármannssyni, forseta Alþingis.
„Það er ástæða til að hrósa forseta Alþingis (og augljóslega Selenskíj) fyrir að gera Íslendingum kleift að hlýða á ávarp manns sem er að takast á við erfiðari aðstæður en nokkur maður eða nokkur þjóð ætti að þurfa að þola,“ skrifar hann.