Opið bréf Kára Stefánssonar til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur vakið mikla athygli í dag. Þar fór Kári hörðum um formann Miðflokksins. Bréfið hófst á þessum orðum:
„Sigmundur Davíð þetta er bréf sem fjallar um manninn sem er stöðugt að leita að annarra manna flísum, sitjandi á eigin bjálka.“
Á öðrum stað í bréfi sínu líkti Kári Sigmundi Davíð við Donald Trump. Þar sagði Kári: „Seinni greinin þín fjallar um þá sem þú kallar förufólk og eru þeir sem flýja fátæk, stríð og aðra eymd þriðja heimsins. Þú bendir réttilega á að heimurinn sé ekki að höndla vel þann vanda sem af þessu hlýst. Það er hins vegar í mínum huga ekkert rétt og allt rangt við þá ályktun sem má lesa milli línanna hjá þér að þess vegna eigum við taka á þessu fólki af hörku þegar það rekur á okkar fjörur sem flóttafólk í leit að næturstað. Þú nefnir sem dæmi um vandann ástandið á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó í valdatíð Obama en minnist ekki orði á þá hörmung sem Trump hefur valdið á sama stað. Það má skilja sem svo að þú lítir aðgerðir Trumps sem lausn á vandanum; að reisa himinháa múra á landamærum við þau lönd þar sem eymd ríkir og skilja að kornabörn og foreldra þeirra ef þau lauma sér inn í landið svo að öðrum skiljist að það sé eins gott fyrir þau að halda sig heima.
Það er ljóst á þeim orðum sem þú birtir í greinunum tveimur í Morgunblaðinu að í leit þinni að pólitískum stuðningi í samfélaginu ert þú að gera út á þá vonlausu og firrtu og í stað þess að varða þeim leið út úr því ástandi ertu að ala á vonleysinu og firringunni. Þú ert að fylgja fordæmi öfgaflokka í Evrópu og Trumps í Bandaríkjunum. Þetta er langt fyrir neðan virðingu þess Sigmundar Davíðs sem kom eins og ferskur blær inn í íslensk stjórnmál fyrir nokkrum árum. Hann barðist fyrir hugsjónum sínum. Í dag er býsna erfitt að átta sig á hvert þú ert að fara nema það sé, hvað sem er fyrir hvaða stuðning sem er.“
Sigmundur Davíð hefur nú svarað Kára. Þar ákveður Sigmundur að gera það sama og Kári og líkir vísindamanninum við Trump en gerir það í mun styttra máli og án þess að færa mikil rök fyrir af hverju hann ákveður að líkja þeim tveimur saman. Sigmundur Davíð segir:
„Fyrir skömmu birti ég tvær greinar um áhrif ímyndar- eða sýndarstjórnmála.
Ég sé að einhverjir hafa tekið því illa sem von var. Einu sinni sem oftar tjáir sýndarfólkið sig þó um eitthvað allt annað en raunverulegt innihald.
Þeirra á meðal er Trump okkar Íslendinga sem enn virðist haldinn þráhyggju gagnvart mér.
Sá virtist ekki hafa kynnt sér innihald greinarinnar frekar en margt annað sem hann tjáir sig um.“