Útilokað er talið að frumvarp Illuga Gunnarssonar um að útvarpsgjald verði óbreytt næsta ár en lækki ekki, verði samþykkt fyrir áramót.
Þetta staðhæfir Agnes Bragadóttir blaðamaður í frétt Morgunblaðsins í dag.
Í fréttinni segir að samkvæmt heimildum Morgunblaðsins stöðvi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra að frumvarpið fáist afgreitt í ríkisstjórn.
Fá mál hafa vakið eins mikla úlfúð innan stjórnarandstöðunnar síðustu daga en örlög frumvarpsins. Talið er að ef Rúv fái ekki meiri tekjur muni þess sjást stað í niðurskurði á starfsmannahaldi og dagskrá.
Staðfest hefur verið að Illugi Gunnarsson hafi sagt útvarpsstjóra fyrr á árinu að Rúv fengi auknar tekjur en eftir því sem fram kemur í Mogganum hefur hann nú orðið undir Sigmundi Davíð.
Þegar Illugi lenti í kreppu vegna Orku Energy málsins var reifað hvort honum yrði skipt út fyrir annan ráðherra um áramótin. Ekki liggur fyrir hvort strand frumvarpsins tengist því.