Sigmundur Davíð spyr Katrínu: Hvað eru mörg kyn?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur sent fyrirspurn til forsætisráðuneytisins þar sem hann óskar eftir svari frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra:

„Hversu mörg eru kyn mannfólks að mati ráðuneytisins?,“ spyr Sigmundur.

Ekki er hægt að fullyrða hvers vegna Sigmundur spyr en margir netverjar eru með kenningar.

Atli Fannar Bjarkason, samskiptamiðlastjóri RÚV, telur að þetta sé liður í að verða sér úti um atkvæði frá fordómafullu fólki í kosningunum í haust. „Nú á að setja hundaflautuna á cruise control,“ segir hann á Twitter.

Halldór Auðar Svansson, Pírati, segir: „Nei nú er maðurinn bara kominn út í sjálfsháð. Getur bara ekki annað verið.“

Hlöðver nokkur kom svo með hugmynd um hvernig Katrín geti tæklað spurninguna einfaldlega. „Stutt svar og krókur á móti bragði? T.d.: „Fólk skilgreinir sjálft sig, hlutverk stjórnsýslunnar er að þjóna borgurunum á eigin forsendum. Ráðuneytið þarf því hvorki né vill leggja eigið mat á fjölda kynja“.“