Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir í færslu á Facebook að hann ætli að prófa sig áfram í því að skreyta páskaegg. Þetta árið ætli hann að reyna að gera svokölluð písanka-egg, úkraínsk/pólsk páskaegg. Með færslunni fylgir mynd af fallega skreyttum eggjum.
„Ef það kemur ekki mynd af mínum eggjum í kvöld vitið þið að mér hefur ekki tekist eins vel upp og þeim sem gerði þessi," skrifar hann.