„þingforseti hefði ekki þurft að láta okkur tala lengur og lengur“. sigmundur davíð í viðtali hjá lindu blöndal í 21 í kvöld:

Haustfundur flokksráðs Miðflokksins var haldinn á laugardaginn. Flokkurinn birti rétt áður heilsíðu auglýsingu í blöðum þar sem fólk var spurt: Átt þúreynslusögu? Hefur þú lent í kerfinu, mætt óbilgirni af hálfu hins opinbera óeðlilegar hindranir í daglegur lífi eða við rekstur vegna hindrana í stjórnkerfinu?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins er í samtali við Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld.

Miðflokkurinn, segir Sigmundur vill minnka „báknið“ og nota skattfé borgaranna betur en það sem fer miður í regluverki hins opinbera gagnvart borgurunum.

En er flokkurinn samkvæmur sjálfum sér þegar málþófið um þriðja orkupakkann kostaði 40 milljónir aukalega í yfirvinnulaun starfsmanna Alþingis? Sem teljast embættismenn og eru þá hluti af „bákninu\"?

„Hluti af þessu kerfi er einmitt að auka lýðræðisvæðingu og það gerum við ekki með því að mega ekki einu sinni ræða málin eða reyna að koma í veg fyrir mistök, reyna að koma í veg fyrir aukna kerfisvæðingu eins og fólst í þriðja orkupakkanum“.

En hverju skiluðu þessir þrjú þúsund yfirvinnutímar embættismanna á Alþingi í málþófinu um orkupakkann?

„Hann skilaði að minnsta kosti því að það skýrðist margt um sumarið og við sjáum hvað stefnir með fjórða orkpakkann“.

En voru þetta ekki heldur dýrar umræður?

„Þær hefðu heldur betur ekki þurft að vera svona dýrar. Ég reyndi margsinnis að útskýra fyrir þingforsetanum að það hefði ekkert upp á sig að fara í einhverja keppni og reyna að láta okkur tala alltaf lengur og lengur að næturlagi þegar fólk hefði ekki tækifæri og enginn hafði tækifæri til að fylgjast með“, segir Sigmundur og að allir hefðu vitað hvað lá fyrir í þessu málefni þegar málþófið hófst í sumar.