Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir mikla þörf vera á róttækum aðgerðum á Landspítala eftir að hann kynntist aðstöðu spítalans sjálfur eftir að hafa þurft að fara í aðgerð vegna botnlangakasts.
„Eftir biðina á bráðamóttökunni og svo tilfærslur í sjúkrarúmi þar sem ég lá um tíma á ganginum og svo í lítilli kompu (sem var mjög fínt og ég var þakklátur fyrir) var ég sendur í aðgerð vegna botnlangakasts,“ skrifar Sigmundur á Facebook en hann greinir frá því að aðgerðin hafi gengið vel og hann sé nú kominn heim.
Var hugsað til fólksins sem bjargaði sér
Hann segir kosti spítalans vera starfsfólkið en að þau eigi skilið að starfa við mikið betri aðstæður. „Mér er hugsað til þess góða og færa fólks sem bjargaði mér og þarf áfram að vinna við slíkar aðstæður,“ segir Sigmundur en hann segir ljóst að mikið álag verði á heilbrigðiskerfinu vegna kórónaveirunnar.
Viðbragðsaðgerðir eru nú í gangi í heilbrigðiskerfinu, sem og félagskerfinu, vegna útbreiðslu kórónaveirunnar en alls eru 55 manns smitaðir af veirunni hér á landi. Landlæknir greindi frá því á blaðamannafundi fyrr í dag að meðal þeirra smituðu væru fimm hjúkrunarfræðingar við Landspítala.
„Þörfin fyrir róttækar aðgerðir og nýtt skipulag í heilbrigðismálum var orðin augljós en nú þarf neyðaraðgerðir,“ skrifar hann að lokum.