Sigmundur davið flytur lögheimili sitt

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, þingmaður Miðflokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra, hef­ur flutt lög­heim­ili sitt í Garðabæ, að því er fram kemur á vef Morgunblaðsins í dag.

Sig­mund­ur var áður til heim­il­is í Aðalstræti 6 á Ak­ur­eyri í húsi í eigu fjöl­skyldu Önnu Kol­brún­ar Árna­dótt­ur, þing­manns Miðflokks­ins. Hann flutti lög­heim­ilið sitt þangað í des­em­ber í fyrra eft­ir að fyrri lög­heim­il­is­skrán­ing var kærð skömmu eft­ir kosn­ing­ar.

Sig­mund­ur Davíð, sem hef­ur um ára­bil verið þingmaður fyr­ir Norðaust­ur­kjör­dæmi, flutti lög­heim­ili sitt á eyðibýlið Hrafna­björg III í Jök­uls­ár­hlíð fyr­ir alþing­is­kosn­ing­arn­ar 2013.

Sig­mund­ur Davíð bjó hins veg­ar hvorki þar né á Ak­ur­eyri, held­ur á höfuðborg­ar­svæðinu, segir á fréttavefnum.