Sigmundur davíð fer gegn bjarna ben

 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar grein í Morgunlaðið þar sem Reykjavíkurflugvöllur og nýjasta saga hans er í forgrunni. Nýleg sala ríksins á landi til Reykjavíkur er formanni Framsóknarflokksins ofarlega í huga. „Ljóst má vera að sala á flugvallarlandi ríkisins í Skerjafirði stenst hvorki lagalegar forsendur né fjárhagslegar forsendur...“

Sigmundur er mjög gagnrýnin á sölu ríkisins. „...berast þær óvæntu og óskemmtilegu fréttir að ríkið hafi selt Reykjavíkurborg rúmlega 110.000 fermetra land sem nú er undir suðurenda umræddrar neyðarbrautar fyrir 440 milljónir króna. Þetta er algjörlega óskiljanleg ráðstöfun eftir það sem á undan er gengið í átökum ríkisvaldsins við núverandi borgaryfirvöld um Reykjavíkurflugvöll og með hlið- sjón af stöðunni sem uppi er í þeirri deilu. Þar fyrir utan er verðið fáránlega lágt fyrir svo stórt og verð- mætt land. Vandfundnar eru verðmætari lóðir í Reykjavík og ekki óvarlegt að ætla að verð- mæti þessarar ríkiseignar nemi 8 til 10 milljörðum króna sé litið til söluverðs byggingarréttar annars staðar í borginni, m.a. verðlagningar borgarinnar sjálfrar á lóð- um sem ekki eru jafnverðmætar og þær sem hér um ræðir.“

Sigmundi er mikið í mun að flugvöllurinn verði áfram á sínum stað, það er eitt, en hin harða gagnrýni á fyrrum félaga, Bjarna Benediktsson er áhugaverð:

„Þessi sérkennilega sala, sem að óbreyttu mun kosta ríkið veikari stöðu í baráttunni um Reykjavíkurflugvöll og milljarða króna...“

Braut Bjarni lög að mati Sigmundar Davíðs?

„Ljóst má vera að sala á flugvallarlandi ríkisins í Skerjafirði stenst hvorki lagalegar forsendur né fjárhagslegar forsendur og hún vinnur gegn því markmiði að standa vörð um Reykjavíkurflugvöll og öruggar flugsamgöngur milli höfuðborgarinnar og landsins alls. Annað getur því vart talist forsvaranlegt en að rifta hinum ólögmæta samningi. Sú riftun myndi vonandi marka umskipti í baráttunni um Reykjavíkurflugvöll og sýna að ríkisvaldið sé reiðubúið að gera það sem þarf til að stöðva tilraunir borgaryfirvalda til að fjarlægja flugvöllinn sneið fyrir sneið.“