Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur ákveðið að segja af sér sem forsætisráðherra. Fréttamönnum hefur verið tilkynnt þetta í Alþingishúsinu eftir langan þingfund framsóknarmanna. Tillaga þingmanna Framsóknarflokksins er að Sigurður Ingi Jóhannsson varaformaður flokksins verði forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð mun halda áfram sem formaður Framsóknarflokksins en stígur til hliðar sem forsætisráðherra.
Eftir því sem Hringbraut kemst næst er vilji til þess meðal sjálfstæðismanna að stjórnarsamstarf verði áfram með Framsóknarflokknum.
Fundur forseta Íslands stendur yfir með Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins á Bessastöðum og gæti svo farið að engin ríkisstjórnarskipti muni eiga sér stað heldur láti stjórnin hrókeringar duga.
Mótmæli hefjast á Austurvelli klukkan 17 í dag en stjórnarandstaðan er að ráða sínum ráðum.