Sigmundur andlit spillingar á heimsvísu


Íslensk spilling var nýverið forsíðufrétt á helsta dagblaði Úrugvæ.
Frá þessu greinir Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður og póstar með mynd af blaðinu á facebook. Þar má sjá að andlit hinnar íslensku spillingar og tengist Panamaskjölunum er  fyrrverandi forsætisráðherra þjóðarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.


Úrúgvæ er land í Suður-Ameríku með landamæri að Brasilíu í norðri, Argentínu í vestri og strönd að Suður-Atlantshafinu í suðri og austri.
Seint á 6. áratug 20. aldar gekk landið í gegnum kreppu sem leiddi til mikilla óeirða. Þá var skæruliðahreyfingin Tupamaros stofnuð. Árið 1968 var neyðarástandi lýst yfir og herinn tók svo völdin í landinu árið 1973. Lýðræði var aftur komið á árið 1984 en hefur gen gið brösuglega. Mikið gengur að jafnaði á þar innanlands bæði viðskiptalega og pólitískt.
Fréttin um Ísland og andlit Sigmundar Davíðs er til marks um áhrif Panamalekans fyrir Ísland.

Lilja Alfreðsdóttir, nýr utannríkisráðherra Framsóknarflokksins, hefur talað niður skaða af vondri ímynd íslands í kjölfar Panamahneykslisins og aðildar fv. forsætisráðherra og tveggja annarra ráðherra að félögum í aflandsskjólum.

Norðmenn hafa ákveðið að bankar aflétti leynd og ljóst verði hverjir geymi fé í aflandsskjólum.