Sigmari guðmunds þakkað samráðið

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í þingræðu undir liðnum Störf þingsins nú eftir hádegi. Tilefni þingræðu Katrínar var að fréttir hefðu verið sagðar af tíðindum um að Íslandsbanki verði aftur ríkisbanki án þess að hún eða aðrir fulltrúar minnihlutans á Alþingi hefðu fengið tækifæri til að segja neitt um málið.

Í morgun þegar Katrín kveikti á Ríkisútvarpinu  hafi Sigmar Guðmundsson útvarpsmaður upplýst Katrínu í beinni útsendingu að hún væri að fara á samráðsfund vegna tíðinda frá kröfuhöfum Glitnis. Katrín sagðist þakka Sigmari fyrir upplýsingarnar, samráðið, í beinni, en það væri óverjandi að fyrst  væri send út fréttatilkynning um miðja nótt en svo ætti að ræða samráð á þar til gerðum fundum.

Fleiri gagnrýndu upplýsingagjöf stjórnarinnar, skort á samráði og vinnubrögð á Alþingi í morgun. Steingrímur J. Sigfússon sagði að þegar send væri út fréttatilkynning um miðja nótt vekti það stórar spurningar og rifjaði upp gamla og vonda tíma.