Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að þrátt fyrir að háir vextir séu tæki sem á að slá á verðbólgu þá neyði þeir fólk líkt í verðtryggð lán.
Hann deildi mynd af frétt RÚV með fyrirsögninni „Íbúðaverð lækkar og fólk sækir í verðtryggð lán“ á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann gagnrýnir ástandið.
„Verðtryggðu lánin vinna svo gegn vaxtatækinu sem þá missir bitið sitt gegn verðbólgunni. Í þessari hringavitleysu erum við föst áratugum saman. Við erum með stjórnvöld sem vilja endilega grafa skurð og hafa ræst út tvö vinnuflokka þar sem annar mokar upp úr skurðinum en hinn ryður ofan í hann jafnharðan,“ segir Sigmar.
Hann segir forystumenn ríkisstjórnarinnar síðustu áratugi hafa staðhæft að hægt sé að vinda ofan af þessari vitleysu í krónuhagkerfinu. „Samt hefur engum þeirra tekist það. Engum.“
„Þessir stjórnmálamenn eru mjög einlægir á svip þegar þeir reyna að fullvissa þjóðina um að nú sé að renna upp stöðugleikaskeið í efnahagsmálunum. Langvarandi og langþráður stöðugleiki. Sennilega trúa þeir þessu sjálfir. Þegar það reynist tálsýn, sem oftast kemur í ljós á fáeinum mánuðum, skipta þeir um plötu. Þá kyrja þeir gamla hittarann um að krónan sé nú að fara að bjarga okkur úr hremmingunum sem krónan kom okkur í. Brennuvargurinn er sem sagt mættur á vettvang með slökkvitæki,“ segir Sigmar jafnframt í færslu sinni og heldur áfram:
„Næstu misseri eru fyrirsjáanleg. Fólk flykkist yfir í verðtryggð lán. Eftir nokkra mánuði af því fer fólk að taka blönduð lán. Síðan taka óverðtryggðu lánin við í einhvern tíma og svo rennur upp gullaldarskeið verðtryggðra lána á ný. Þetta endurtekur sig svo út í hið óendanlega.
Og sömu stjórnmálamennirnir rökstyðja svo hringavitleysuna með því að fjölbreytt lánaform séu til marks um valfrelsi neytenda. Þetta meinta frelsi er hins vegar ekkert skárra en að geta valið á milli þess að vera með höfuðverk, hálsbólgu eða beinverki. Með hlaðna byssu við höfuðið.
Stærri gjaldmiðill er ekki töfralausn. En hann mun klárlega spara heimilum, fyrirtækjum og ríkissjóði óheyrilega fjármuni. Og minnka þörf heimila á stöðugri og streituvaldandi áhættustýringu með húsnæðið sitt,“ segir Sigmar að lokum.