Sigmar ráðinn talsmaður eggja-, kjúklinga- og svínabænda: „skiptir máli að standa vörð um innlenda matvælaframleiðslu“

Sigmar Vilhjálmsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og eigandi Hamborgarafabrikkunnar, Shake & Pizza og Keiluhallarinnar í Egilshöll, hefur verið ráðinn talsmaður nýstofnaðs félags í eigu svínabænda, eggjabænda og kjúklingabænda. Nýja félagið ber heitið FESK og er meginmarkmið þess að stuðla að upplýstri og ábyrgri umræðu um landbúnað á Íslandi. Bændablaðið greinir frá.

„Í nútíma samfélagi er offramboð af upplýsingum og því miður eru upplýsingarnar oft harðsoðnar, stuttar og klipptar úr samhengi. Mitt hlutverk verður að létta á bændum með því að fylgjast með umræðunni og svara fyrir þá þætti sem FESK telur ekki nægilega skýra,“ segir Sigmar í samtali við Bændablaðið.

Í frétt blaðsins segir að FESK muni verða málsvari Félags kjúklingabænda, Félags eggjabænda og Félags svínabænda á opinberum vettvangi og koma fram fyrir hönd félagsmanna. Í fréttatilkynningu frá FESK segir að stofnendur félagsins vonist til þess að starfsemi þess verði öflugur liðsauki í baráttu alls íslensks landbúnaðar fyrir tilveru sinni, þar sem samvinna og samheldni allra búgreina sé mikilvæg heildinni.

Sigmar segir mikið sótt að íslenskum landbúnaði þessa dagana og að margir fletir í umræðunni  þyrftu að vera skýrari:

„Það er samfélagslega mikilvægt að ræða þessi mál án sleggjudóma. Landbúnaður snýst um samfélagið okkar, þjóðina, heilsu og náttúruvernd. Allt eru þetta málefni sem eru gríðarlega mikilvæg, ekki bara hér á landi, heldur alls staðar í heiminum. Matvælaframleiðsla, lýðheilsa og sjálfbærni eru stór þáttur í verkefnum allra stjórnvalda í heiminum. Ísland hefur ennþá sterka stöðu í þessum efnum og hana ber að verja. FESK mun leggja sitt af mörkum til að svo megi verða áfram.“

Í stuttri færslu á Facebook-síðu sinni vegna tíðindanna bætir hann við: „Ég hef alltaf haft mikið álit á íslenskum afurðum og íslenskum landbúnaðarvörum. Það er því spennandi að fá að vinna að þessu núna. Það skiptir miklu máli að standa vörð um innlenda matvælaframleiðslu, sérstaklega um þessar mundir.“