Sigmar opnar sig um áföll í æsku og neysluna: „Það var brotið gegn mér“

„Ég var að reyna að gera upp áföll sem ég lenti í þegar ég var mjög ungur, án þess að vita það. Ég var reiður. Það var brotið gegn mér og maður skildi ekkert hvað var í gangi í kollinum,“ sagði Sigmar Guðmundsson, frambjóðandi Viðreisnar og fyrrverandi fjölmiðlamaður, í viðtali í hlaðvarpinu Snæbjörn talar við fólk.

Sigmar, sem skipar 2. sæti í Suðvesturkjördæmi á lista Viðreisnar í haust, opnar sig um neysluna í æsku, þegar hann féll með látum og áföllin sem leiddu hann út í neyslu.

Sigmar áttaði sig á að hann var að burðast með áföll sem hann hafði ekki getað unnið úr, og kerfið ekki jafn skilvirkt á þeim tíma og það er í dag.

„Mér fór að líða betur en ég gerði aldrei upp þessi æskuáföll fyrr en löngu síðar og hefði nú betur gert það fyrr.“ Burðaðist hann með mikla reiði innra með sér frá 12 til 16 ára aldurs.

„Verandi óvirkur alki þá veit ég að þessi sjúkdómur er, og þetta er það sem mér finnst, að hann er mjög áfalladrifinn,“ segir hann.

„Í mínu tilfelli snýst þetta að einhverju leyti um eitthvað sem maður verður fyrir þegar maður er ungur. Það er síðan einhver rauður óuppgerður þráður, sem maður tekst á við síðar. Maður fattar þetta samhengi ekki fyrr en maður er orðinn miklu eldri. Maður ímyndar sér það í dag, að þarna sé eitthvað sem var miklu sterkara afl í lífinu heldur en maður hefði kannski haldið. Ég fór bara í það löngu síðar að takast á við þessa hluti. Þarna voru hlutir að gerast sem að fjölskyldan mín vissi ekki af, sem að enginn vissi neitt af.“

Hann var svo búinn að vera edrú lengi þegar hann féll, hann fór í leyfi frá Kastljósi árið 2015. „Það fylgir þessu ákveðinn óheiðarleiki, þú ert að bregðast fólkinu þínu, þú ert ekki að standa þig sem faðir, þú ert ekki að standa þig í vinnunni. Ég fór í gegnum allt þetta, mjög illa.“ Það tók hann svo tvö ár að koma sér út úr því. „Þetta var svolítið andlegt niðurbrot.“